djarfi
20.09.2006 21:59:04 / djarfi

Smá færsla

Langar til að setja smá getraun hérna inná og er verðlaun í boði fyrir þann sem er fyrir þann sem er fyrstur með svarið og eru þau pylsa og kók:-)

Ég er lítil,en þó mikils virði 
Ég hjálpa öllum 
Ég opna hurðir og hjörtu 
Ég skapa vináttu og velvilja 
Ég hvet til virðingar og aðdáunar 
Ég er elskuð af öllum 
Ég læt engum leiðast 
Ég brýt engin lög 
Ég kosta ekki neitt 
Ég hef fengið hrós hjá mörgum og engin hefur hatað mig 
Ég er jafn viðfeldin fyrir háa sem lága 
Ég er nothæf allar stundir dagsins 
  Hver er ég ?

» 6 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 01:42:38 / djarfi

Liverpoolmenn karlrembur!!!!!!!:-)hehehehehe

Hennar hlið á gærkvöldinu

Hann var í furðulegu skapi í gærkvöldi. Við höfðum ákveðið að hittast á kaffihúsi yfir einum drykk eða svo.
Ég hélt að það væri mér að kenna, þar sem ég var heldur sein vegna þess að ég var að versla með stelpunum og gleymdi mér aðeins.

Hann minntist samt ekkert á það.

Okkur gekk ekkert að ná saman, svo ég hélt að það yrði kannski þægilegra að vera einhverstaðar þar sem við gætum verið ein, svo við fórum á mjög rómantískt veitingahús.
En hann var ennþá í ferlega furðulegu skapi.
Ég reyndi að hressa hann og var farin að spá í hvort að þetta væri bara ég eða hvort eitthvað alvarlegt væri í gangi.
Ég spurði hann, en hann svaraði því neitandi. En ég var ekki viss.
Allavega, á leiðinni heim, þá sagði ég honum hvað ég elskaði hann heitt.
Hann setti hendina utan um mig, en svaraði mér ekki. Ég veit ekki hvað í fjandanum það á að þýða, því ég var nú kannski að vonast til að hann myndi segja að hann elskaði mig líka eða eitthvað.

Við komum loksins heim og ég var farin að spá í hvort hann ætlaði að dömpa mér. Ég reyndi að fá hann til að tala, en hann kveikti bara á sjónvarpin.
Þá gafst ég upp og fór í rúmið.
Mér til mikillar undrunnar þá kom hann upp til mín um það bil 20 mínútum seinna.
Við gerðum það, en hann virtist ennþá vera utan við sig.
Eftir sexið; dauðlangaði mig að hundskamma hann, en ég grét mig bara í svefn.
Ég veit ekki hvað ég á að gera lengur.
Ég meina, í alvöru.
Ég held að hann sé farinn að halda framhjá mér.

Hans hlið á gærkvöldinu:

Liverpool tapaði. Ég fékk þó að ríða.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 02:35:11 / djarfi

Kók góður drykkur????

Drekkur þú jafn mikið vatn og þú ættir að gera á hverjum degi?

KÓK !!

- Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með10 lítra af kóki í
bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.

- Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir
2 daga.

- Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af kók ofan í klósetið,
bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir
upp bletti.

- Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír
í kók og nuddaðu stuðarann.

- Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kók yfir
rafgeymatengslin.

- Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með kóki og
haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.

- Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í
þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið
leysir upp fitublettina.

- Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.

- Virka efnið í kók er phosphoric acid.

- Ph í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.

- Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa
vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti sem einungis eru
notuð á bíla sem flytja MJÖG ÆTANDI EFNUM.

- Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár
til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.

Langar þér enn í hressandi dós af Coca-Cola?

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 00:15:04 / djarfi

Jæja þannig fór um sjóferð þá

Jæja Arsenal tapaði úrslitaleiknum í meistaradeildinni gegn góðu liði Barca en samt getur maður ekki annað en verið sáttur miðað við að spila einum færri 70min. Gerðum meira en önnur lið hafa gert í vetur að skora á Barca einum færri og veita þeim mikla samkeppni 10 á móti 12:-) eða segji svona því ekki var dómarinn að eiga góðan leik og finnst mér það skrítið að hann hafi verið láta dæma þennan leik því eins og menn muna þá dæmdi hann leik Chelsea og Barca í vetur og fékk ekki háa einkunn eftir þann leik en samt var honum umbunað með þvi að fá að dæma úrslitaleikinn skrítið.Það segjir svolítið um framistöðu hanns að það var baulað þegar þeir tóku við verðlaununum. En samt er ég ekki að verja það að fyrst að hann flautaði gat hann ekkert annað gert en að gefa Lemma rautt en hefði getað beðið aðeins og leyft hagnaðarreglunni að ráða og leyft markinu að standa og þá hefði leikurinn verið skemtilegri í alla staði. En þá spyrja öruglega einhverjir sig hvort hann hefði ekki getað látið markið standa og rekið svo Lemma af velli en þá segji ég að han hefði getað sleppt því að gera það þvi að rauða spjaldið er gefið því hann er að ræna sóknarmannin marktækifæri en þeir skora þannig þá er ekki verið að ræna þá neinu en svona er fótboltinn og þessvegna er hann svo skemmtilegur. Ég hefði samt viljað sjá leikinn spilaðann ellefu á ellefu það hefði getað verið mjög gamann en get sat ekki annað en verið stoltur af mínum mönnum hetjuleg barátta og ekki viðslakt lið Barca lið e læt þetta nægja í bili tökum þetta bara á næsta ári:lol:

En annars er RM að klárast um helgina þannig það fer aðeins að róast hjá mér þannig að maður getur farið að fara meiraí golf með þér Hnikarr og langar að spila með metro en veit ekki hvað mikið ég get verið með í sumar þannig vil ekki gefa mig alveg út fyrir að vera með og taka pláss frá einhverjum sem getur verið með á fullu.


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 00:39:43 / djarfi

Góður!!!!!!

A black guy talking to a white guy.

Black man: Dear white man. Let me tell u something.
When im born, im black
When i grow up, im black
When im in the sun, i get black
When im cold, im black
When im afraid, im black
When im sick, im black
And when im dead, im still black
----
but when u are born, ur pink
When u grow up, ur white
When u are in the sun, u get red
When ur cold, u get blue
When ur afraid, u get yellow
When ur sick, ur green
And when ur dead, ur grey

So why the fk do u call me colored?!?

Varð að skella þessum inn nokkuð góður en reyndar stolinn enn samt góður fyrir því:lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 22:46:18 / djarfi

Jæja!!!!!!!!!!!!!

Jæja ætli það sé ekki best að henda einhverju hérna inná svona smá fréttir.Var í egilshöll mestan hluta úr deginum með 6.flokk í Reykjavíkurmótinu reyndar bara með yngra árið því eldra árið er á morgun og það verður langur dagur eða frá 8:30 til 18:30 uff.En samt þó maður sé alveg búinn eftir svona daga þá er þetta rosalega gamann sérstaklega að sjá hvað strákunum finnst þetta gamann og ekki skemmir að vinna leikina;) En annars er bara að detta í sumarið og grasið fer að grænka og sólinn að rísa og þá verður gamann. En annars veit ég ekki hvað skal bulla hérna meira þannig ég læt þetta nægja úr borg óttans í bili kveðja Daniel

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 20:54:42 / djarfi

Komið sumar??

Jæja nú er maður farinn að vona að sumarið sé komið með sól og gott veður en það verður bara að koma í ljós allavegana var ég að koma af æfingu sem var úti og var bara þessi blíða eins og fyrir norðann;). En annars er þetta farið að rúlla sinn vana gang hjá mér nema það að ég spilaði leik með stærsta smáliði á landinu þar að segja Snerti á móti Bí og kom ég smá við sögu þar en fóru við með sigur af hólmi í miklum markaleik 5-4 og var gamann að fá að spila smá bolta og á maður eftir að sakna þess í sumar að fá ekki að keppa neitt en ætli maður verði ekki svolítið með á æfingum í sumar. En reyndar er ég að spá í að spila kanski með Metromönnum í utandeildinni hérna fyrir sunnan og er það mjög spennandi kostur en verð aðeins að spá í það.

En annars læt ég þetta nægja hérna í bili með kveðju Djarfi


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 00:42:14 / djarfi

Páskar á Nafla alheimsinns

Jæja kallinn skellti sér norður til að hlaða batteríinn aðeins enda hefur verið mikið að gera og hafa ekki verið margir frídagar.En það er skemmst frá því að segja að páskafríið byrjaði ekki skemmtilega því að á aðfaranótt föstudagsinns langa þá tók kallinn uppá því að búa til Gullfoss og Geysi til skiptis og var það ekki fallegt það get ég vottað um og svaf maður því lítið þá nótt og var ónýtur allan föstudaginn.

En svo var tekið flugið á laugaradagsmorgunninn og fór ég niður á flugvöll 7:30 og ætlaði að fara með vélinni 8:30 en nei þá var frestað flugi útaf þoku á ak svo ég sat á flugvellinum til að verða tíu og var ekki alveg að hafa þolinmæði í það en þraukaði en ekki mikið meira en það.

En svo tókst mér að komast norður og var það mjög gott að komast að hitta hluta af fjölskylkunni og vinum og rifja aðeins upp gamla tíma.Og meir að segja komst ég aðeins í bolta með Húna og frænda hans og einhverjum vinum hans og var það gamann því gamli maðurinn leit bara þokkalega vel út ekki það að hraðinn hafi verið mikill en útsjónaseminn var meiri og´voru þeir mjög ánægðir með kallinn og eru með lið í utandeildinni og vildi bara kaupa mig til liðsinns sem var gamann bara.

En svo er maður kominn suður aftur og á fult og voru æfingar í dag og svo tveir leikir og svo horfði maður á meistarana í Arsenal halda góðum leik í meistaradeildinni áfram og er maður bara að fara kaupa sér miða til Parísar í vor til að sjá þá spila við barca í úrslitunum:-)hehehehhehe en læt þetta nægja í bili sennilega lengstu skrif mín héra frá upphafi.

Kveðja Daniel


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 22:13:08 / djarfi

Smá spaug

Jæja nenni samt ekki að skrifa mikið hér inná þetta er allt við það sama hjá mér æfingar í miðri viku og svo leikir um helgar þannig maður geriri ekkert þess á milli nema hvíla sig.

En langar að skella léttum spurningum sem þið eigið að svara um ykkur sjálf

1)Hvernig kaka værir þú?

2)Hvernig bíll værir þú?

En jæja læt þetta nægja í bili.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 17:55:01 / djarfi

Góður!!!!!

Það hefur víst heyrst í enskum slúðurblöðum að Cesc fabregas hafi verið stoppaður í tollinum á leið til spánar að fagna sigri á juventus með fjölskyldu sinni.En eins og segjir þá var stoppaður og heldu tollverðir að hann væri með 100kg af fýkniefnum á sér og annað eins í tösknni sinni en í ljós kom að Cesc gleymdi bara að taka Viera úr vasanum eftir leikinn og svo var Emerson greiið í töskunni :Dheheehhhehhehhe

En eins og segjir er þetta í slúðurblöðunum þannig maur veit ekki með sanleikann í þessu en samt góð frétt


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 20:40:15 / djarfi

Arsenal eru bestir!!!!!!!!!!

Arsenal voru að vinna ofurtöffarana í Juventus 2-0 að sálfsögðu;) lang bestir.

En jæja hef svosem ekki getað boggað mikið því kem varla heim orðið lífið er bara fótbolti núna þessa dagana sem er sjálfumsér gott.Er búinn að horfa á 3 leiki á laugardag og fjóra á sunnudag og svo einn í dag auk æfinga þannig þetta er fínt líf núna ena gengur okkur í Fjölni mjög vel það sem af er Reykjavíkurmóts þannig það er mjög gott.Er meir að segja farinn að stjórna leikjum einn sem er mjög gamann þannig það er bara gott mál en veit ekki hvað ég á að bulla meira hérna nema það að maður getur ekki annað en ljómað eins og jólatré á aðfangadag á ......æj árni þú veist hvað þetta er bara fyrir þig:)heheheheh en jæja þangað til næst seejú Daniel


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 21:46:20 / djarfi

Fyndið......

Jæja eru þið búinn að heyra um fréttina frá Akureyri en er frekar fyndinn þar var einhver tekinn fyrir of hraðann akstur sem er svosem ekki frásögu færandi nema að ellevu mínutum síðar var hann tekinn aftur þá fyrir að vera að tala í símann hehhhehehehheheheheh:lol:

En annars af mér þá var ég að dæma minn fyrsta leik og alveg pottþétt ekki þeim síðast var reyndar bara sem aðstoðardómari en það er fínt að fá smá euka pening fyrir þetta og get ég tekið nóg af leikjum því í mars eru ekki nema rétt um 100 leikir sem fjölnir þarf að redda dómurum.En annars er reykjavíkurmótið að byrja og það með látum og verður það stuð.Arsenal eru dottnir í gírinn svakalega voru þeir góðir í dag en reyndar var ekki mikil mótspyrna en samt alveg snild hef sjaldan séð svona mikla yfirburði í einum leik í vetur nema þá kanski hjá everton á móti aston villa í dag :-)nei djók baldur heheheheh kveðja DJ


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 12:29:27 / djarfi

Góðir

Jæja góður dagur í gær er arsenal sigraði liverpool 2-1 en hefði svosem átt að vera stærri en voru arsenal klaufar uppvið markið en svo vildi steven sjá góðann framherja skora og þar sem framherjarnir í hans liði skora ekkert sama hvað hann sendir á þá ákvað hann að best væri bara að senda á henry og að sjálfsögðu þakkaði kappinn fyrir það og skoraði og sanngjarnsigur hjá arsenal:D. Annars eru sögusagnir um að davíð hinn mikli sé á leið til arsenal og fer maður að velta því fyrir sér hvort steven vilji ekki bara fá að spila með arsenal eftir sendingu gærdagsins nei bara létt pæling hehehe kveðja Daniel

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 20:18:22 / djarfi

Smá pæling

Jæja allt fínt er að frétta af mér var í gær með u-13 í dalhúsum í fótbolta langt fram á kvöld því það var smá sleepoffer hjá þeim og var svaka stuð og voru tekinn tvö létt mót og pantað pizzu og stuð.En annars er maður bara í rúntínunni og fór samt að spá þegar ég var að horfa á fréttirnar áðann hvert þetta blessaða þjóðfélag væri að stefna menn eru hættir að slást bara uppá gamla mátann með hnefum heldur eru menn bara með hnífa og stínga mann og annan og það í bakið hvað er að!Held maður ætti bara að fara að flytja í sveitinna því þar er það kanski mesta hættann að maður fái fuglaflensuna en held nú að það sé sat skárra en þessi blessaða höfuðborg sem við eigum veit allavegana að hnikarr er mér sammála um það.

En annars langaði mig bara að skrifa einhverja vitleysu hérna inná á eftir að reyna að koma með fleiri hugleyðingar hérna inná sem kanski sumum finnst mis gáfulegar en þar sem mér er alveg sama um það þá er það bara í góðu hver á að vera með sýnar skoðanir.En vona bara að arsenal spila eins á móti madrid á miðvikudaginn eins og þeir spiluðu í gær á móti fulham var orðið hálf vandræðalegt fyrir greiið voltz fyrum arsenal mann eða kanski hefur hann ekki verið viss með hvoru liðinu hann spilaði nei létt spaug en bið að heilsa nær og fjær og fariði vel með ykkur kveðja Daniel 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 17:17:39 / djarfi

Var að klára námskeið

Jæja þá er maður búinn að vera á KSÍ 3 knattspyrnuþjálfaranámskeiði um helgina og er maður orðinn alveg stútfullur af nýjum hugmyndum og hefur mikla þekkingu að vinna úr núna sem er mjög gott.Fékk maður nokkuð nýja innsýn í fótboltann meðalannars fórum við að leikgreina leik og nú fer maður að horfa öðruvísi á fótboltann og allar hreyfingar og hlaup það er á hreinu.Þannig leið helginn að mestu hjá mér sat á fyrirlestrum allan daginn á segja þannig ég ætla að halda uppá það og fara uppí egilshöll og horfa á skagann með nokkuð nýja sóknarlínu hjá sér á eftir:)

Með kveðju Djarfi


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2